Ný verðskrá

hakon | 19. January 2009

Um áramótin tók gildi ný verðskrá hjá Opex. Í kjölfarið eiga flestir okkar viðskptavinir eftir að fá nýja upphæð á reikningana sína en góðu fréttirnar eru þær að í öllum tilfellum eru þær lægri eða jafnháar. Engar hækkanir hafa átt sér stað.

Sumir viðskiptavinir fá ný nöfn á þá þjónustu sem þeir keyptu t.d. mun “Pakki 2″ breytast í “Silfur hýsingu” og í þeim tilvikum mun einnig stærð heimasvæðis aukast án aukagjalds.

Þeir sem voru viðskiptavinir NetBerg fyrir áramót munu einnig verða þess varir að reikningar verða nú merktir OPEX en í meginatriðum eiga þeir eftir að vera líkir fyrri reikningum fyrir utan nýtt logo.

Við bendum viðskiptavinum okkar á að kynna sér nýju verðskrána en ekki gleyma því að sérlausnir hverskonar standa einnig til boða. 

Opex skipti einnig um bókhaldskerfi um áramótin og nú bjóðum við greiðslu reikninga á mánaðarfresti, 3, 6 og 12 mánaða fresti. Veittur er afsláttur ef greitt er á 6 eða 12 mánaða fresti. Hægt er að frá greiðsluseðla og reikninga  senda í pósti gegn 260 kr. gjaldi eða fá seðillausa kröfu í netbanka gegn 85 kr gjaldi (þá kemur reikningur í tölvupósti).

Góðar stundir,

Starfsfólk Opex

Breytingar á nafnaþjónum

bergur | 8. January 2009

Vegna breytinga á nafnaþjónum  gætu viðskiptavinir okkar fengið tölvupóst frá ISNIC þar sem kemur fram að vistun lénsins hafi verið breytt.

Þetta mun ekki hafa nein áhrif á þjónustu við viskiptavini og mun ekkert breytast, þetta er einungis gert til að einfalda uppsetningu léna.

Nafnaþjónar Opex eru eftirfarandi eftir breytingar:

ns1.opex.is
ns2.opex.is
og
ns3.opex.is

Við viljum biðja viðskiptavini sem eru með lén sem enda á einhverju öðru en .is um að breyta nafnaþjónum í áður tilgreinda nafnaþjóna eða hafa samband við okkur á opex@opex.is til að fá hjálp við að breyta.

Með bestu kveðju,

Starfsfólk Opex.