Ný verðskrá

hakon | 19. January 2009

Um áramótin tók gildi ný verðskrá hjá Opex. Í kjölfarið eiga flestir okkar viðskptavinir eftir að fá nýja upphæð á reikningana sína en góðu fréttirnar eru þær að í öllum tilfellum eru þær lægri eða jafnháar. Engar hækkanir hafa átt sér stað.

Sumir viðskiptavinir fá ný nöfn á þá þjónustu sem þeir keyptu t.d. mun “Pakki 2″ breytast í “Silfur hýsingu” og í þeim tilvikum mun einnig stærð heimasvæðis aukast án aukagjalds.

Þeir sem voru viðskiptavinir NetBerg fyrir áramót munu einnig verða þess varir að reikningar verða nú merktir OPEX en í meginatriðum eiga þeir eftir að vera líkir fyrri reikningum fyrir utan nýtt logo.

Við bendum viðskiptavinum okkar á að kynna sér nýju verðskrána en ekki gleyma því að sérlausnir hverskonar standa einnig til boða. 

Opex skipti einnig um bókhaldskerfi um áramótin og nú bjóðum við greiðslu reikninga á mánaðarfresti, 3, 6 og 12 mánaða fresti. Veittur er afsláttur ef greitt er á 6 eða 12 mánaða fresti. Hægt er að frá greiðsluseðla og reikninga  senda í pósti gegn 260 kr. gjaldi eða fá seðillausa kröfu í netbanka gegn 85 kr gjaldi (þá kemur reikningur í tölvupósti).

Góðar stundir,

Starfsfólk Opex