Símkerfi

  • Skoða sem PDF skjal

IP símkerfiaastra57i
Opex býður uppá margskonar IP símkerfi fyrir lítil og meðal stór fyrirtæki, símkerfin eru sett upp og sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Sem dæmi um aðstæður þar sem IP símkerfi henta vel:

Dæmi 1:
Einyrki með símanúmer fyrir viðskiptavini sem er áframsent í gsm síma hans á milli kl 9 og 17 alla virka daga, utan þess tíma fá viðskiptavinir hans upp símsvarakveðju sem les upp hver opnunartími er og gefur viðskiptavininum tækifæri til að skilja eftir skilaboð í talhófli. Einyrkinn fær svo sendan tölvupóst um að hans bíði skilaboð, einnig er hægt að fá þessa tilkynningu í sms.

Dæmi 2:
Fyrirtæki með 6 starfsmenn, allir starfsmennirnir fá IP símtæki á skrifborðið sitt. Fyrirtækið er svo með símanúmera seríu, t.d. 333-2200, allir starfsmenn eru með beint innhringinúmer, t.d. 333-2201,  svo hægt er að hringja beint í einstaka starfsmenn.
Þegar viðskiptavinur hringir í aðalnúmerið 333-2200 þá fær heyrir hann talvél sem segir að hann sé kominn í samband við fyrirtækið og gefur honum upp valmöguleika, veldu 1 fyrir sölu og ráðgjöf eða 2 fyrir reikninga.
Það fer svo eftir því hvað hann velur hvert símtalið er sent innan fyrirtækis.
Starfsmenn geta svo áframsent símtöl úr borðsímanum sínum í gsm síma sinn.

Dæmi 3:
Fyrirtæki með 40 starfsmenn, sama uppsetning og í dæmi 2 nema að þetta fyrirtæki er með 17 starfsmenn í þjónustuveri, þá er hægt að setja upp biðraðir fyrir þjónustuverið, ein fyrir reikninga, ein fyrir tækiþjónustu, eins margar og fyrirtæki þarf, viðskiptavinur fer þá í biðröð þangað til að þjónustu fulltrúi getur svarað símtalinu og á meðan þá heyrir viðskiptavinurinn tónlist sem fyrirtæki velur og einnig getur símkerfið sagt honum hvar hann er í röðinni og hvað hann má búast við því að þurfa að bíða lengi
Starfsmenn þjónustuversins geta svo séð á stórum skjá í þjónustuverinu hvað margir eru á bið og hve langur biðtíminn er, einnig geta þjónustu fulltrúar opnað vefsíðu í tölvum sínum til að fylgjast með þessum upplýsingum.

Fyrirtækið getur einnig verið með mörg útibú tengd á sama kerfið, hvar sem er í heiminum.
Við bjóðum líka upp á svokallaðann “softphone” sem hentar vel þeim sem eru mikið á ferðinni með fartölvuna og geta þá tengst símkerfinu hvar sem þeir komast í netsamband á tölvunni.

Starfsmenn geta verið með forrit í tölvunni sinni þar sem þeir sjá hverjir eru í símanum, í gegnum það forrit er einnig hægt að gefa símtöl á milli starfsmanna.

Við bjóðum fyrirtækjum upp á frí símtöl á milli borðsíma og gsm síma sem eru skráðir á fyrirtæki.

Athugið að þetta eru einungis dæmi, símkerfin eru alltaf sett upp og sérsniðin að þínum þörfum.



Endilega hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um símkerfi.

Þú ert hér: Þjónusta Símkerfi