Um Opex
Opex ehf. var stofnað í byrjun árs 2004 og hefur boðið uppá vefhýsingar, vefsmíði og sérhæfðar veflausnir frá þeim tíma. Þann 1.janúar 2009 sameinaðist fyrirtækið NetBerg ehf. undir merkjum Opex. NetBerg hafði einnig boðið uppá svipaða þjónustu og Opex auk þess sem fyrirtækja- og símkerfaþjónusta var einnig í boði. Öflugri standa félögin saman og er þjónustan því fjölbreyttari þó svo hvergi verður vikið frá þeirri reglu að þjónusta alla viðskiptavini vel, smáa og stóra. Nýtt og öflugra Opex býður því uppá víðtækar lausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki á netinu.
Opex ehf hýsir mörg hundruð vefi fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök. Á meðal þeirra sem eru í fyrirtækjaþjónustu hjá Opex eru Ríkissáttasemjari, eMax, PlúsMínus og mörg fleiri.
1.janúar 2009 var nýr vefur Opex opnaður og nýtt logo félagsins kynnt.