Eftirfarandi skilmálar gilda varðandi þjónustu Opex ehf.
1. Opex ehf ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af þjónustu Opex ehf eða ef ekki er hægt að nota þjónustuna af einhverjum ástæðum, né ábyrgð á tengingu í gegnum þriðja aðila við Opex ehf.
2. Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á eigin tölvubúnaði, hugbúnaði og gögnum.
3. Opex ehf ber ekki ábyrgð á töpuðum gögnum hvort sem gögn tapast vegna bilunar í búnaði hjá Opex ehf eða vegna utan að komandi ástæðna.
4. Opex ehf áskilur sér rétt til að loka á þjónustu viðskiptavinar ef reikningar hafa ekki verið greiddir samfellt í 3 mánuði, eftir 6 mánaða vanskil áskilur Opex ehf sér rétt til þess að eyða út öllum gögnum viðkomandi viðskiptavinar á kerfum Opex. Einnig áskilur Opex ehf sér rétt til að loka á þjónustu viðskiptavinar eftir 2 daga vanskil í sérstökum tilfellum.
5. Óheimilt er að nota þjónustu Opex ehf við ólöglegt athæfi eða til trufla eða skaða aðra á nokkurn hátt, öll ólögmæt notkun er á ábyrgð notanda.
6. Skráður rétthafi þjónustunnar ber fulla ábyrgð á allri notkun henni tengdri og telst ábyrgur fyrir því að þessum reglum sé fylgt. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausri og fyrirvaralausri lokun á þjónustunni.
7. Opex ehf áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála án fyrirvara ef þörf krefur.
Athugið að með því að nota þjónustu Opex ehf samþykkir þú sjálfkrafa þessa skilmála.
Reykjavík, 1.ágúst 2008

